Þriðjungur skólabygginga í höfuðborg Úkraínu eru án húshitunar eftir nýlegar eldflauga- og drónaárásir Rússlandshers. Árásir hersins á orkuinnviði hafa verið sérstaklega þungar að undanförnu og raskað orkuöryggi milljóna íbúa landsins á einum harðasta vetri í áratugi. Frost hefur reglulega farið niður fyrir 20 stig að undanförnu og í Kyiv hefur þurft að sameina skóla og leikskóla svo hægt sé að taka þar á móti börnum. Friðarviðræður síðustu daga og vikna hafa enn ekki skilað árangri. Enn ber nokkuð í milli um yfirráð yfir landsvæðum í austurhéruðum Úkraínu.Úkraínsk stúlka styttir sér stundir í sérstöku hitatjaldi í Kyiv. Þeim hefur verið komið upp víðsvegar svo að fólk sem býr án húshitunar geti yljað sér stutta stund.EPA / Maxym Marusenko