Eftir 22 ár með Ernu Solberg í broddi fylkingar tekur Ine Eriksen Søreide við formannsembætti í norska íhaldsflokknum Høyre. Ine er ein í framboði en næstu vikur munu reyna á nýja formanninn enda er enn mörgum spurningum um umfang sambands norskra stjórnmálamanna við Jeffrey Epstein ósvarað.