Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Bandaríkin og Evrópu tilheyra hvort öðru og eiga samleið. Í ræðu sem hann hélt í morgun á öryggisráðstefnunni í München gagnrýndi hann þó Evrópu vegna aðgerða gegn veðurfarsbreytingum, stefnu í orkumálum og þess hvernig haldið er á spöðunum varðandi málefni innflytjenda, svo eitthvað sé nefnt.