Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Í takt við okkar skuldbindingar sem NATO þjóð“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ákvörðun stjórnvalda að verja átta milljónum bandaríkjadala, um milljarði króna, í vopnakaup fyrir Úkraínu sé hluti af áður samþykktum fjárútlátum á fjárlögum. „Þetta er kostnaður sem er í takt við fjárlög og fjárveitingar síðustu ára. Þetta er í takt við okkar skuldbindingar sem NATO þjóð,“ segir hún.„Þarna er í raun bara útdeilingin á þessu fjármagni sem var samþykkt í fjárlögunum hafin og við erum þarna að taka þátt í verkefnum sem aðrar NATO þjóðir eru að taka þátt í.“Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra greindi frá vopnakaupum Íslands á fimmtudag á fundi varnarmálaráðherra NATO þjóða. Fjármagnið fer í gegnum verkefni á vegum NATO sem kallast PURL (Prioritised Ukraine Requirements List). Í gegnum þetta verkefni er miðað að því a
„Í takt við okkar skuldbindingar sem NATO þjóð“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta