Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kærastasafinn kom í veg fyrir að Mílaní kæmist til Mílanó

Framhjáhald, typpastækkanir og hræðileg slys hafa verið áberandi í fjölmiðlaumfjöllun í kringum Vetrarólympíuleikana á Ítalíu. Við segjum fleiri sögur af svipuðu tagi í Heimskviðum í dag. Þar er fjallað um Sidney Milani, íþróttakonu frá Iowa, sem er í keppnisbanni eftir að sterar mældust í þvagsýni hennar í mars í fyrra. Hún vonaðist til að keppa í bobsleðakeppni ólympíuleikana sem byrjar á morgun en komst ekki á leikana. „LÍFEÐLISFRÆÐILEGA MÖGULEGT AÐ ÞETTA MYNDI MÆLAST Í SÆÐI“ Hennar skýring var sú að kærasti hennar, sem hún bjó með á þessum tíma, hefði notað sterana en hann er ekki afreksíþróttamaður. Hún taldi líklegast að hún hefði fengið sér sopa af drykk með einhvers konar sterablöndu og þannig hefði það borist í þvagið. En það gæti líka hafa komist þangað með sæði kærastans. >
Kærastasafinn kom í veg fyrir að Mílaní kæmist til Mílanó

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta