Á annan tug aldraðra hafa verið fluttir af Landspítala á Suðurnesin til að losa um legurými á spítalanum. Enn er til skoðunar að tvímenna í einstaklingsherbergi á hjúkrunarheimilum.Aldraðir eru færðir af Landspítala á sjúkrahúsið á Suðurnesjum til að rýmka á spítalanum. Heilbrigðisráðherra segir spítalann þurfa meira fé og skoðar að leigja húsnæði.Til greina kemur að flytja sjúklinga, sem hafa lokið meðferð á Landspítala og bíða eftir að komast á hjúkrunarheimili, á sjúkrahótel. Og því yrði svo fundinn annar staður í leiguhúsnæði. ÝMISLEGT Á TEIKNIBORÐI RÁÐHERRA Þetta var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun þar sem staða bráðamóttöku var á dagskrá - en óvíst er hvaða húsnæði verður fyrir valinu. „Það er auðvitað ekki hægt að taka hvaða húsnæði sem er og reka þar heilbrigðisþjónustu,“ seg