Lögregluþjónar á höfuðborgarsvæðinu handtóku í nótt tvo menn í Grafarvogi sem grunaðir eru um stórfellda líkamsárás og vörslu fíkniefna. Þá var einnig handtekinn maður í Breiðholti sem grunaður er um líkamsárás, eignaspjöll, hótanir og vopnalagabrot.