Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Samvinnan afsökun til að hittast oftar

Systurnar Rannveig Aðalbjörg, Ólína Björk og Helgarut Hjartardætur vinna saman á hverjum degi og segjast ekki vilja hafa það öðruvísi. Ólína rekur verslunina Drangey Studio á Sauðárkróki og í búðinni selur Helgarut innflutt garn og Rannveig handlitar garn.Systurnar leggja áherslu á að allar vörur í búðinni séu hreinar og vottaðar. Það sé bæði betra fyrir heilsuna og umhverfið.Þær systur segja engin vandræði hafa komið upp í samstarfinu. Þær njóti félagsskaparins og hafi afsökun til að hittast oftar.Landinn kíkti á systurnar og lærði að handlita garn í leiðinni.Landinn er á dagskrá alla sunnudaga kl. 19.45.
Samvinnan afsökun til að hittast oftar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta