Að jafnaði fimmtán til tuttugu legurými hafa staðið ónotuð á degi hverjum í Klíníkinni Ármúla undanfarna mánuði. Læknamiðstöðin, sem fer ört vaxandi, hefur haft tök á því að lyfta undir með Landspítalanum, stytta bið eftir skurðaðgerðum, létta álaginu af bráðamóttökunni og jafnvel aðstoða við fráflæðisvandann, en þessi samstarfsmöguleiki hefur ekkert verið nýttur.