Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því gefa út forsetatilskipun um ný kosningalög fyrir þingkosningarnar í nóvember, ef frumvarp um ný kosningalög verður ekki samþykkt á þinginu.Þetta sagði hann í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær. Frumvarp um ný kosningalög, sem nýtur stuðnings Trumps, „SAVE America“ var samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í síðustu viku. Það er talið líklegt að það verði fellt í öldungardeild, þar sem meirihluti repúblikana er of tæpur og því þarf líka stuðning demókrata við frumvarpið til að það verði að lögum.Með lagabreytingunni vill Trump fyrirbyggja kosningasvindl. Hann vill að allir kjósendur sýni skilríki með ljósmynd til að geta kosið, en ekki þess er ekki krafist í öllum kjördæmum Bandaríkjanna. Þá vill hann einnig að kjósendur sanni ban