Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þrír meintir eiturlyfjasmyglarar drepnir í loftárás

Bandaríski herinn drap þrjá meinta eiturlyfjasmyglara í bát í loftárás í Karíbahafinu í gær, samkvæmt færslu hersins á samfélagsmiðlinum X. Bandaríkjastjórn, fyrir tilstilli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hóf að leita uppi meinta eiturlyfjasmyglara og smyglbáta í Karíbahafinu í september á síðast ári.Tugir árása hafa verið gerðar á báta á þessum slóðum og 133 manns hafa verið drepnir. Bandaríkjastjórn hefur, enn sem komið er, ekki lagt fram gögn sem sanna smygl eða ógn við bandaríska hagsmuni. Sérfræðingar hafa sagt árásirnar stangast á við alþjóðalög, þær séu aftökur utan dóms og laga, jafnvel þótt grunur leiki á smygli.
Þrír meintir eiturlyfjasmyglarar drepnir í loftárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta