Bræður leika sér í síma á heimili sínu, í rafmagnsleysi í Kyiv. Myndin tengist fréttinni ekki beint.AP / Sergei Grits31 skóli og leikskóli í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, eru án hita eða yfir þriðjungur allra menntastofnana í borginni, samkvæmt úkraínskum yfirvöldum.Skólar hafa verið sameinaðir tímabundið svo hægt sé að halda áfram kennslu í skólunum. 110.000 nemendur snéru aftur til náms eftir skólafrí í febrúar en einhverjir nemendur stunda fjarnám.Fyrir innrás Rússa í Úkraínu voru þrjú stór orkuver sem sáu íbúum í Kyiv fyrir rafmagni og hita. Orkuverin hafa ítrekað orðið fyrir árásum síðan innrásin hófst. Ástandið hefur þó verið sérlega slæmt undanfarið og hafa þúsundir borgarbúa verið án rafmagns og hita, oft svo dögum skiptir.