Slökkviliðsbíll.RÚV / Birgir Þór HarðarsonÞrír einstaklingar festust í lyftu milli hæða í fjölbýlishúsi í Kópavogi í kvöld. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk útkall skömmu eftir miðnætti og fór dælubíll á staðinn með búnað til að losa fólkið úr lyftunni. Aðgerðin gekk vel og fljótlega gekk að losa fólkið úr lyftunni sem var að vonum frelsinu fegið.Þá fór annar dælubíll frá slökkviliðinu í verkefni í Breiðholtinu, þegar ofnalögn sprakk í íbúð og eitthvað af heitu vatni flæddi um íbúðina. Slökkviliðsmenn soguðu upp vatn með búnaði sínum og tjónið var lítils háttar.