Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Uppbyggilegur fundur með Rubio um Grænland

Mette Frederiksen forsætisráðherra DanmerkurDRMette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segir að fundur hennar og Jens-Frederik Nielsen, formanni landsstjórnar Grænlands, með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi verið uppbyggilegur. Þau eru stödd á öryggisráðstefnunni í München, sem hófst í dag. Stjórnvöld ríkjanna hafa nýverið átt í viðræðum í kjölfar tíðra fullyrðinga Bandaríkjaforseta um að Bandaríkin verði að eignast Grænland. Nielsen sagði að á fundinum hefði verið lögð áhersla á hagsmuni Grænlands, viðræður væru eina leiðin fram á við.
Uppbyggilegur fundur með Rubio um Grænland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta