Louvre-safnið í París hefur átt í vök að verjast undanfarið en þar hafa átt sér stað innbrot, miðasvindlhneyksli og verkföll síðustu mánuði. Í dag bættist enn í þessa röð hrakfalla þegar tilkynnt var að vatnsleki hefði orðið í fjölsóttustu álmu safnsins í annað skipti á þriggja mánaða tímabili.