Tveir lögreglumenn sem starfa hjá innflytjendastofnun Bandaríkjanna eru sagðir hafa veitt ósannar upplýsingar í vitnisburði sem þeir gáfu um skotárás á innflytjanda í Minneapolis, árásin varð þann 14. janúar.Todd Lyons, forstjóri innflytjendastofnunarinnar, sagði að lögreglumennirnir tveir hefðu tafarlaust verið sendir í leyfi meðan á rannsókn málsins stendur yfir. Hann segir brot mannanna alvarlegt, „Að ljúga undir eið er alvarlegt alríkisbrot,“ sagði Lyons.Dómari féllst á að fella niður ákærur á hendur tveggja manna sem sakaðir voru um að hafa ráðist á lögreglumennina.Í upphaflegri yfirýsingu heimavarnarráðuneytisins Bandaríkjanna kom fram að lögreglumaður hefði skotið mann í fótinn eftir að þrír innflytjendur réðust á hann með skóflu og kústskafti. Myndbandsupptökur hafa leitt í ljós að