Okkar borg, sem býður fram í Reykjavík í vor, vill hætta við þéttingu byggðar og segja upp samningum um hælisleitendur. Sigfús Aðalsteinsson, oddviti framboðsins vill að borgin beiti sér fyrir vaxtalækkun.„Við erum hægri flokkur,“ svarar Sigfús spurður hvar framboðið staðsetji sig á pólitíska ásnum. VERKEFNALISTINN ER LANGUR OG FJÖLBREYTTUR Okkar borg hefur ekki boðið fram áður í Reykjavík og verkefnalistinn er langur:„Við viljum breyta samgöngumálunum, við viljum breyta menntamálunum eins langt og við getum, við viljum laga þessi leikskólamál og við viljum beita okkur í lækkun vaxta,“ segir Sigfús.Oddviti Okkar borgar sem býður fram í Reykjavík í vor segir framboðið hægra megin við miðju. Okkar borg vill fækka hælisleitendum, hætta við Borgarlínu og byggja á Geldinganesi.Hvernig gæti k