Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Vöggustofur í Reykjavík:„Þetta var eitt stórt klúður og fékk að halda áfram alltof lengi“

Nokkrir þeirra sem dvöldu sem börn á vöggustofunum Hlíðarenda og Thorvaldsensfélagsins hafa farið fram á að sett verði lög um sanngirnisbætur. Alls voru 1.558 börn höfð á vöggustofunum á árunum 1949-1979.Stefán S. Stefánsson er einn af þeim sem dvöldu sem barn á vöggustofu. Hann segir engin lög í gildi, sem þýði að engar sanngirnisbætur séu greiddar út meðan á lagaleysinu stendur.„Við erum ekki að fara í mál við ríkisstjórnina, við erum ekki að stefna einum eða neinum. Við erum bara að hvetja til þess að það verði samin sanngjörn lög sem draga dám af þeim lögum sem voru í gildi 2010.“Hann segir aðstæður á vöggustofunni hafa verið skelfilegar.„Ef barn grét þá mátti ekki taka það upp og hugga það. Það var bara látið liggja og gráta þar til það hætti að gráta. Og manneskjur eru þannig gerðar
Vöggustofur í Reykjavík:„Þetta var eitt stórt klúður og fékk að halda áfram alltof lengi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta