Kötturinn Mandla á Akranesi hefur tekið að sér vitavörslu á Skaganum. Hún er í hópi íslenskra katta sem hafa öðlast heimsfrægð á samfélagsmiðlum.„Hún er orðin starfsmaður hérna, búin að vera hérna í eitt og hálft ár,“ segir Hilmar Sigvaldason, vitavörður og samstarfsmaður Möndlu.Samkvæmt gps-tæki sem Mandla er með um hálsinn gekk hún einn daginn samtals 37 kílómetra fram og til baka milli vitanna og heim til sín.Mandla nýtur vinsælda meðal ferðamanna sem koma að skoða vitann. „Þeir taka mikið af myndum af henni. Hún er með Facebook-síðu sem heitir Mandla litla vitavörður,“ segir Hilmar.Kötturinn Ófelía í Icemart á Skólavörðustíg hefur slegið í gegn á Tik Tok. Dæmi eru um að ferðamenn komi yfir hálfan hnöttinn til að berja hana augum.