Suðurkóreska leyniþjónustan segir að Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, ætli á næstunni að útnefna eftirmann sinn í embætti. Lengi hefur þótt líklegt að Kim Ju Ae, dóttir leiðtogans, verði formlega útnefnd, en leyniþjónustan tilkynnti nýverið að hún hefði vissu um að það stæði til á næstunni. Mögulega verði það gert á flokksþingi kommúnistaflokks landsins síðar í þessum mánuði. Ju Ae er talin vera annað barn Kim Jong Un og eiginkonu hans Ri Sol Ju. Hin börn þeirra tvö hafa aldrei sést opinberlega. Ekki er vitað hvað Ju Ae er gömul, líklega á bilinu tólf til fjórtán ára. Suðurkóreska leyniþjónustan telur sig vita að hún hafi þegar fengið leiðtogaþjálfun og sé stundum leyft að hafa skoðanir á stjórn ríkisins. Nýlega voru fluttar fréttir af heimsókn Kim-fjölskyldunnar í Kumsusan-hofið í höfu