„Þetta voru fín uppgjör, bæði voru þau umfram mínar væntingar þótt það sé nú ekki að sjá á markaðnum í dag [gær] þar sem Kvika endaði niður um fimm prósent,“ segir Alexander Jensen Hjálmarsson, stofnandi Akks – Greiningar og ráðgjafar, í samtali við Morgunblaðið um uppgjör Arion banka og Kviku banka fyrir lokafjórðung 2025 og árið í heild sem birt voru í fyrradag.