Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Afdráttarlaus stuðningur Willums Þórs við Lilju kom Sigurði Inga á óvart

Sigurður Ingi Jóhannsson segir Framsóknarflokkinn eiga lítið sameiginlegt með Miðflokknum sem hann skilgreinir sem hægri öfgaflokk. Hann útilokar ekki að úrslitin í formannskjörinu á sunnudag hafi áhrif á það hvort hann haldi áfram sem þingmaður eða ekki. UNDIR ÞAÐ BÚINN AÐ LÁTA FORMENNSKU Sigurður Ingi Jóhannsson lætur af formennsku í Framsóknarflokknum á sunnudag eftir að hafa gegnt embættinu í tíu ár. „Mér líður bara vel,“ segir Sigurður Ingi í Speglinum. Nokkuð sé síðan að hann tók þessa ákvörðun og síðustu dagar hafi ekkert verið skrýtnir. „Það getur vel verið að ég vakni á sunnudaginn og skilji ekkert í þessu en sú tilfinning hefur ekkert verið að hellast yfir mig og ég er alveg undir þetta búinn.“Framsóknarflokkurinn mælist með lítið fylgi skoðanakönnunum og fékk aðeins fimm menn
Afdráttarlaus stuðningur Willums Þórs við Lilju kom Sigurði Inga á óvart

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta