„Við eigum von á að f yrirtæki hafi hraðað verðhækkunum og gengið á lagið eins og þau gátu í skjóli verðhækkana sem leiddu af opinberum gjaldabreytingum, en reyni í kjölfarið að halda aftur af frekari hækkun.“Þetta segir Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku, í verðbólguspá markaðsviðskipta Kviku sem hann sendi viðskiptavinum bankans í dag. Þar er spáð 5,0 prósenta verðbólgu í febrúar. Það er 0,2 prósentustigum minna en í janúar.Bráðabirgðaspá Kviku hljómar upp á að janúar hafi markað tímabundið hágildi verðbólgunnar og að hún fari hjaðnandi næstu mánuði. Það gæti gerst á sama tíma og þungar mælingar á fyrri hluta síðasta árs detti út úr tólf mánaða samanburði. Gangi það eftir þokast verðbólga í átt að 4,6 prósentum í maí.„Nokkur óvissa ríkir um verðbólguþrýsting í hagkerfinu eftir þu