Erlendir fangar með lítil eða engin tengsl við Ísland fá reynslulausn eftir að hafa afplánað þriðjung refsingar í stað helmings, nái frumvarp dómsmálaráðherra fram að ganga. Drög að frumvarpinu voru birt í samráðsgátt í dag.Þar er lagt til að tímabundin heimild verði veitt til styttingar á reynslulausn þegar fyrir liggur að erlendum föngum verði brottvísað í kjölfar afplánunar. Við reynslulausn yrði viðkomandi vísað úr landi þegar í stað.Einnig er lagt til að þeir sem hefur verið ákveðið að vísa úr landi geti ekki afplánað refsingu á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti. Slík úrræði eigi aðeins við þegar viðkomandi ætli að aðlagast íslensku samfélagi.Í drögunum segir að álag í fangelsiskerfinu valdi því að sífellt fleiri dómar fyrnist. 75 óskilorðsbundnir dómar fyrndust í fyrra og 98