Í dag er föstudagurinn þrettándi og líklega hafa margir farið sérstaklega gætilega þess vegna. Margs konar hjátrú fylgir tölunni þrettán og ekki síður þegar svo ber til að föstudagur er 13. dagur mánaðar.Afþreyingariðnaður nútímans hefur nýtt dagsetninguna til að hræða fólk um áratugaskeið. Þekktastur er sennilega sagnabálkurinn um hinn grímuklædda Jason sem hrellt hefur unglingssálir síðan í kringum 1980.Allir dagar vikunnar eru jafnlíklegir til að verða þrettándi dagur mánaðar, það gerist á föstudegi að meðaltali 171 sinni á öld, samkvæmt færslu Þorsteins Vilhjálmssonar heitins, prófessor emeritus í eðlisfræði á Vísindavefnum. Það er upp undir tvisvar á ári að meðaltali.Svo vill til að 13. dagur mars ber einnig upp á föstudag. Meinta ógæfu þessarar dagsetningar má líkt og margt annað rek