Dómstóll í London kvað upp þann dóm í dag að það hafi verið ólöglegt af stjórnvöldum að skilgreina samtökin Palestine Action sem hryðjuverkahóp. Einn af stofnendum hópsins, Huda Ammori, lýsir úrskurðinum sem mikilvægum sigri fyrir grundvallarfrelsi í Bretlandi og fyrir baráttuna fyrir frelsi Palestínumanna, að því er fram kemur í fréttAl Jazeera.Stjórnvöld ætla að áfrýja úrskurðinum og verður bann á starfsemi samtakanna í gildi þar til eftir að niðurstaða liggur fyrir í áfrýjunarmálinu. Því er áfram ólöglegt að vera hluti af samtökunum eða að styðja þau. Lögreglan í London hefur þó gefið til kynna að ólíklegt sé að fólk verði handtekið fyrir að sýna stuðning sinn við samtökin.Ammori sagði í yfirlýsingu í dag að áfrýjunin væri ranglát. Þúsundir mótmælenda hafi verið handteknir á mótmælum Pa