Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vonast til þess að frumvarp um stofnun rannsóknarnefndar í tengslum við Bakkakotsmálið verði lagt fram á núverandi þingi. Málefni þeirra sem dvöldu á Bakkakoti og segjast hafa verið beitt ofbeldi þar voru rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í dag.„Það er mjög líklegt að það þurfi að koma til lagasetning vegna slíkrar rannsóknar og við erum að upplýsa ríkisstjórnina um það,“ sagði Kristrún eftir ríkisstjórnarfund í dag. Hún telur mikilvægt að frumvarpið líti dagsins ljós sem allra fyrst. „Vonandi á þessu vorþingi ef það er sátt um það í þinginu,“ segir hún.Þær lagabreytingar þarf að sögn Kristrúnar snúa að stofnun rannsóknarnefndarinnar sem tæki að sér að skoða málið. Þá þurfi einnig að afmarka umfang rannsóknarinnar.„Þetta eru viðkvæmar upplýsingar, við v