Björgunarsveitirnar Berserkir í Stykkishólmi og Klakkur á Grundarfirði voru kallaðar út stuttu fyrir klukkan þrjú til að aðstoða við sjúkraflutninga á manni sem slasaðist á göngu um Vatnaleið. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, staðfestir þetta.Maðurinn féll 15 til 20 metra við foss nærri Selvallavatni, segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi. Maðurinn sé erlendur ferðamaður.Upplýsingar um líðan mannsins liggja ekki fyrir en Ásmundur segir að hann hafi verið með meðvitund og hefði hreyft útlimi þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn.Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir þyrluna hafa verið fljóta af stað þar sem hún hefði verið nýbúin á æfingu.Maðurinn var h