Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Íbúar Kaldrananeshrepps og Árneshrepps kjósa um sameiningu í mars

Sveitarstjórn Kaldrananeshrepps samþykkti í vikunni að halda íbúakosningar um sameiningu Kaldrananeshrepps og Árneshrepps. bb.is greindi frá. Kosningarnar eiga að fara fram 14.-28. mars. Kosningaaldur verður miðaður við 16 ár líkt og leyfilegt er samkvæmt sveitarstjórnarlögum. Samkvæmt tölum Hagstofunnar eru Árneshreppur og Kaldrananeshreppur annað og fimmta fámennasta sveitarfélag landsins. Sameinaður íbúafjöldi hreppanna yrði 175 og sameinað sveitarfélag yrði það fimmta fámennasta af rúmlega 60 sveitarfélögum á landinu.Drangsnes er í Kaldrananeshreppi og yrði stærsti byggðakjarninn í sameinuðu sveitarfélagi Kaldrananeshrepps og ÁrneshreppsMarkaðsstofa Vestfjarða
Íbúar Kaldrananeshrepps og Árneshrepps kjósa um sameiningu í mars

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta