Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Loka fyrir WhatsApp og þrýsta á fólk að fá sér ríkisapp

Stjórnvöld í Rússlandi hafa lokað fyrir aðgang að samskiptaforritinu WhatsApp og sakað fyrirtækið um brot á lögum. Þrýst er á fólk að skipta yfir í ríkisstyrkta appið Max.WhatsApp sakaði rússnesk stjórnvöld í gær um að reyna að loka að fullu fyrir aðgang Rússa að forritinu. „Það að reyna að hindra aðgengi 100 milljóna notenda að persónulegum og öruggum samskiptum er skref aftur á bak og getur aðeins leitt til þess að dragi úr öryggi fólks í Rússlandi,“ segir í yfirlýsingu WhatsApp á samfélagsmiðlinum X.Talsmaður stjórnvalda í Rússlandi, Dmitry Peskov, var spurður um málið í gær og sagði að verið væri að loka fyrir aðgengi að WhatsApp því fyrirtækið hefði ekki farið eftir lögum í Rússlandi. WhatsApp er í eigu bandaríska fyrirtækisins Meta. Peskov ráðlagði fólki að skipta yfir í Max.Síðan í
Loka fyrir WhatsApp og þrýsta á fólk að fá sér ríkisapp

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta