Í Þetta helst í dag beinum við sjónum okkar að hagnaði stóru viðskiptabankanna þriggja sem hafa nú allir birt uppgjör fyrir síðasta ár. Arion banki hagnaðist um 30,6 milljarða króna, Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða króna og Íslandsbanki um 25,2 milljarða. Þannig nemur samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra 93,8 milljörðum króna.Samanlagður hagnaður stóru viðskiptabankanna þriggja nam 93,8 milljörðum króna í fyrra. Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði, segir það mjög mikið í íslensku samhengi og telur aukna samkeppni leika lykilhlutverk þegar kemur að vaxtamuninum.„Þetta eru óneitanlega mjög háar tölur í íslensku samhengi. Komu reyndar ekkert á óvart því þetta var nokkurn veginn það sem var búist við og raunar ekkert svo heitið getur hærra en það hefur verið undanfarin ár en