Það er skellur fyrir sameiginlegt átak jarðarbúa til að taka á loftslagsvánni að Bandaríkjastjórn telji ekki lengur að gróðurhúsalofttegundir séu hættulegar fólki. Þetta segir Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs. Jarðarbúar hafi aðeins eitt andrúmsloft. ALVARLEGAR BREYTINGAR Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna komst að þeirri niðurstöðu 2009 að losun gróðurhúsalofttegunda í lofthjúp jarðar ógnaði heilsu almennings og velferð núverandi og komandi kynslóða. Einnig að ný vélknúin ökutæki og vélar í þeim stuðluðu að aukinni losun. Þetta var notað til grundvallar regluverki um losun gróðurhúsalofttegunda.Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti í gær að þessi niðurstaða ætti hvorki stoð í staðreyndum né lögum. Því hefði hann afturkallað hana.Þetta er stærsta breyting Trumps á l