Hópur einstaklinga sem voru vistaðir á vöggustofum í Reykjavík 1949 til 1979 hefur sent Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra bréf og farið þess á leit að ríkið tryggi þeim sanngirnisbætur.Tvær rannsóknir á starfsemi Vöggustofunnar Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins hafa leitt í ljós slæman aðbúnað barna og alvarlegar langtímaafleiðingar vistarinnar á þau.Davíð Þór Björgvinsson lögmaður sendi bréfið á forsætisráðherra fyrir hönd fimm vöggustofubarna sem leituðu til hans. Hann segir í bréfinu að tilgangurinn sé ekki að setja fram einstaklingsbundnar kröfur heldur hvetja forsætisráðherra til að setja í gang vinnu innan stjórnsýslunnar um að tryggja sanngirnisbætur úr ríkissjóði.Hann vísar til fyrri laga um sanngirnisbætur, sem eru fallin úr gildi, og hvetur til þess að vöggusto