Víkurfjara hefur byggst upp á ný eftir landbrotið í haust þegar sjóvarnargarður rofnaði og fjárhús tókst á haf út. Jóhannes Marteinn Jóhannesson, jarðfræðingur hjá Kötlu jarðvangi, sem sér um mælingar á fjörunni, segir ríkjandi austanátt vetrarins hafa farið vel með hana.