Frá því á miðri 20. öld hafa þorrablót notið vinsælda og mögulega aldrei meira en akkúrat nú um þessar mundir. Blótin eru haldin hringinn í kringum landið, stór og smá. En hvað einkennir gott þorrablót?Norðlenska hljómsveitin Færibandið hefur sérhæft sig m.a. í að spila á þorrablótum og hafa þeir félagar lært ýmislegt af reynslunni. „Jú þetta er mjög sérstakt, við erum að taka mörg óhefðbundin lög á ballinu,“ segir Daníel Andri gítarleikari hljómsveitarinnar.Jóhanna María Oddsdóttir situr í stjórn þorrablótsnefndar í Hörgársveit. „Þetta er í raun og veru bara stóri viðburðurinn í sveitinni á hverju ári,“ segir hún og bætir við að þetta sé sameiningartákn sveitarinnar.Þú getur séð áhugaverða umfjöllun um þorrablótin í spilaranum hér að ofan.