Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rússar hóta viðbrögðum gegn „Varðstöðu á norðurslóðum“

Rússar grípa til „viðeigandi gagnaðgerða“ ef hervæða á Grænland og ógna Rússlandi, sagði Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands í rússneska þinginu, Dúmunni, á fimmtudag. Hann var þar spurður út í Arctic Sentry, eða Varðstöðu á norðurslóðum, aðgerð sem NATO-ríkin tilkynntu um á miðvikudag og beinist að því að efla varnir og fælingarmátt á norðurslóðum.„Auðvitað, ef Grænland verður hervætt, ef þar verður byggður um hermáttur sem beinist að Rússlandi, munum við grípa til viðeigandi mótvægisaðgerða, þar á meðal hernaðar-tæknilegra ráðstafana. Engu að síður er meginafstaða okkar sú að norðurslóðirnar eigi að vera svæði friðar og samvinnu,“ sagði Lavrov í þinginu. Ræðan var vélþýdd úr rússnesku.Honum var „hræsni“ Vesturveldanna hugleikin – að réttur Grænlendinga til sjálfsstjórnar væri viður
Rússar hóta viðbrögðum gegn „Varðstöðu á norðurslóðum“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta