Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óskaði trúnaðarupplýsinga um íslenska bankahrunið og deildi með arftaka Kaupþings í Lúxemborg

Breska dagblaðið The Telegraph greinir frá því í dag að Andrew Mountbatten-Windsor hafi deilt trúnaðarupplýsingum um samskipti breskra og íslenskra stjórnvalda eftir bankahrun með Jonathan Rowland.Feðgarnir David og Jonathan Rowland tóku yfir Kaupþing í Lúxemborg eftir hrun og breyttu nafninu í Banque Havilland. Rowland varð um svipað leyti gjaldkeri Íhaldsflokksins breska en var bolað úr starfi vegna vafasamra viðskipta.Í frétt blaðsins í dag segir að ritari Mountbattens-Windsor, sem þá var Andrés prins, hafi sett sig í samband við yfirmann alþjóðafjármála í breska fjármálaráðuneytinu í febrúar 2010. Hún bað hann um að taka saman upplýsingar fyrir prinsinn um nýjustu stöðu mála í samskiptum Íslands og Bretlands um innstæður í íslensku bönkunum í Bretlandi.Viku síðar fékk ritari Mountbatte
Óskaði trúnaðarupplýsinga um íslenska bankahrunið og deildi með arftaka Kaupþings í Lúxemborg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta