Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allt að fimmtán stiga frost

Kuldaboli fer á kreik um allt land og bítur fast, sérstaklega í innsveitum þar sem frostið getur farið í allt að fimmtán stig. Þetta er í boði hæðar yfir Grænlandi og lægðasvæðis við Noreg sem beina köldu heimskautalofti inn á landið. Veðurspáin er svohljóðandi:Norðlæg eða breytileg átt í dag, víða þrír til tíu metrar á sekúndu. Él um landið norðanvert, og einnig við suðausturströndina fram eftir degi, en léttskýjað suðvestantil. Frost þrjú til fimmtán stig, kaldast inn til landsins.Austlæg átt, fimm til þrettán, á morgun, en hægviðri um landið norðaustanvert. Dálítil él suðaustan- og austantil, annars þurrt að mestu. Áfram kalt, en dregur úr frosti sunnanlands. Hvessir allra syðst annað kvöld.Veðurfræðingur á vakt á Veðurstofunni sendi okkur þennan pistil:Hæð yfir Grænlandi og lægðasvæði
Allt að fimmtán stiga frost

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta