Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tveimur líkamsárásum á kvöld- og næturvaktinni. Minni háttar meiðsl hlutust af líkamsárás í Hafnarfirði og afgreiddi lögregla það mál á staðnum. Kona í annarlegu ástandi var handtekin í Grafarvogi eftir líkamsárás og hún flutt í fangaklefa. Tveir voru handteknir fyrir þjófnað úr verslun í Hafnarfirði og nokkrir voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur, akstur undir áhrifum eða fyrir að fara yfir á rauðu ljósi hér og þar á höfuðborgarsvæðinu.Hafnarfjörður.RÚV / Ragnar Visage