Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Barist um framtíð Framsóknarflokksins

Það ræðst á sunnudaginn hvort það verður Ingibjörg Isaksen eða Lilja Dögg Alfreðsdóttir sem fær það verkefni að reisa Framsóknarflokkinn upp úr dýpstu krísu sem flokkurinn hefur lent í. Lilja þykir sigurstranglegri en viðmælendur innan flokksins segja að Ingibjörg hafi sótt mjög í sig veðrið á síðustu dögum. Úrslitin ráðast á því hverjir mæta á flokksþingið sem hefst á Hilton hóteli í Reykjavík á morgun.Flokksþingið verður líka svanasöngur Sigurðar Inga Jóhannssonar á formannsstóli. Hann hefur leitt flokkinn í tíu ár og þótt hann hafi almennt þótt farsæll og almennt óumdeildur formaður, þar til undir það síðasta, skilur hann við flokkinn í djúpum dal. Framsókn fékk einungis 7,8 prósent atkvæða í síðustu alþingiskosningum og fimm menn kjörna. Það er versti árangur í sögu flokksins. Flokksme
Barist um framtíð Framsóknarflokksins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta