Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Long vonast eftir að fá annað tækifæri hjá Íslendingum

William Long, sendiherraefni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta á Íslandi, baðst afsökunar á ummælum sínum um að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna þegar hann kom fyrir öldungadeild bandaríska þingsins í gær.Long flutti yfirlýsingu um tilnefningu sína sem sendiherra og greindi frá áherslum sínum, ef til þess kæmi að hann yrði sendiherra.Öldungadeildarþingmaðurinn og Demókratinn Jeanne Shaheen spurði Long út í ummælin og áréttaði að svona tegund af gríni væri ekki viðeigandi hjá þeim sem kæmi til greina sem sendiherra Bandaríkjanna. Grín sem þetta þætti öðrum ekki endilega fyndið og til eyrna hefði borist frá Íslandi að fólk hefði áhyggjur af því að hann hefði látið þessi ummæli falla sem tilnefndur sendiherra.Long vafðist tunga um tönn í fyrstu en sagði svo: „Þetta var þriggja manna tal. Ein
Long vonast eftir að fá annað tækifæri hjá Íslendingum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta