Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrsta liþínnáma sinnar tegundar í Evrópu tekin í notkun

Fyrsta liþínnámuvinnsla sinnar tegundar í Evrópu hófst í Syväjärvi-námunni í Vestur- Finnlandi í gær þegar námufyrirtækið Keliber sprengdi formlega fyrstu sprengjuna í námunni að viðstöddum gestum og blaðamönnum.Liþín úr námunni verður nýtt til að framleiða rafhlöður fyrir farsíma, rafmagnstannbursta og rafbíla og fyrir varaorkubirgðir fyrir lestarkerfi. Mikil eftirspurn er eftir liþíni á heimsvísu og er framleiðslunni ætlað að draga úr þörf á innflutningi frá Kína.Syväjärvi-náman er innan þriggja sveitarfélaga og námuvinnslan á að skapa allt að 350 störf. Talið er að náman muni endast í 18 ár. Keliber ráðgerir að opna sex námur í Mið-Austurbotni í Vestur-Finnlandi.Finnska ríkisútvarpið greinir svo frá.
Fyrsta liþínnáma sinnar tegundar í Evrópu tekin í notkun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta