Að minnsta kosti 38 fórust, sex manns er saknað og 374 eru slasaðir eftir að hvirfilbylurinn Gezani fór yfir borgina Toamasina á Madagaskar á þriðjudaginn.12.000 manns misstu heimili sín og eru á vergangi en hvirfilbylurinn olli gríðarlega mikilli eyðileggingu. Yfir 18.000 heimili eru gjöreyðilögð, auk þess sem tugir þúsunda heimila eru skemmd eða fóru undir vatn þegar sjór gekk á land.Stjórnvöld gáfu út viðvaranir áður en óveðrið skall á eyjunni og náðu þúsundir íbúa að koma sér í öruggt skjól áður en óveðrið skall á.Toamasina er önnur stærsta borg Madagaskar með um 400.000 íbúa. Mikil flóð hafa verið á eyjunni á regntímabilinu undanfarið og um 140 manns hafa farist síðan í október.