Vísbendingar eru um gerviverktöku í ferðaþjónustu og að þóknun verktaka sé oft langt undir því sem þarf til að standa undir kostnaði og réttindum sem launafólk nýtur samkvæmt kjarasamningum. Þetta er meðal niðurstaðna í skýrslu um eftirlitsátak Vinnustaðaeftirlits Alþýðusambands Íslands sem kynnt var í gær.Vinnustaðaeftirlit ASÍ og stéttarfélaganna tók þátt í eftirlitsátaki með fólksflutningum og leiðsögn í ferðaþjónustu sumarið 2025. Rætt við 404 einstaklinga og skráðar 325 fyrirtækjakennitölur.Niðurstöður úr átakinu benda til að verktaka sé útbreidd meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra. Vísbendingar eru um gerviverktöku, þar sem vinnufyrirkomulag og aðstæður bera einkenni hefðbundins ráðningarsambands þrátt fyrir að samningar séu gerðir um verktöku.Eftirlitsfulltrúar urðu einnig vari