Anila Bisha, albönsk leikkona, hefur kært albanska ríkið fyrir að stela persónueinkennum sínum og nota þau til að búa til svokallaðan „gervigreindarráðherra“.TVP World greinir frá.Edi Rama, forsætisráðherra Albaníu, kynnti landsmenn sína fyrir gervigreindarspjallmenninu Diellu í september. Diella er klædd í hefðbundinn albanskan klæðnað en henni er ætlað að hjálpa borgurum og fyrirtækjum að rata um vefsíður hins opinbera og draga úr skriffinsku.Persónueinkenni Bisha, andlit hennar og rödd, voru notuð til að búa til spjallmennið Diellu. Bisha segist hins vegar aldrei hafa gefið leyfi fyrir því að persóna hennar yrði notuð í „hlutverki ráðherra“. SPJALLMENNIÐ ÁVARPAÐI ALBANSKA ÞINGIÐ Bisha segist hafa skrifað undir samning sem heimili albönsku ríkisstjórninni að nota persónueinkenni henna