Tryggingafélagið Sjóvá hagnaðist um rúma 2 milljarða króna árið 2025, þar af um 1,4 milljarða á síðasta ársfjórðungi. Það er meira en helmingi minni hagnaður en árið 2024. Þá var hagnaður 4,2 milljarðar króna yfir árið og 2,8 milljarðar síðasta ársfjórðunginn.Í ársuppgjöri Sjóvár kemur fram að hagnaður af vátryggingarsamningum fyrir skatta á síðasta ári hafi verið tæpir 2,6 milljarðar króna, samanborið við 1,3 milljarða árið 2024. Þá hafi hagnaður af fjárfestingarstarfsemi fyrir skatta árið 2025 verið 448 milljónir króna.„Tjónaþróun var hagfelld á árinu, sér í lagi í ljósi stórtjónaþróunar en eitt stórtjón féll til á árinu samanborið við sex stærri brunatjón á árinu 2024 og útskýrir stórbætta afkomu vátryggingasamninga á milli ára,“ er haft eftir Hermanni Björnssyni, forstjóra Sjóvár, í ár