Samanlagður hagnaður bankanna þriggja í fyrra, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans, nemur nærri 94 milljörðum króna.Íslandsbanki birti uppgjör síðasta árs í dag. Þar kemur fram að arðsemi eigin fjár hafi verið 10,5 prósent í fyrra og að vaxtatekjur hafi aukist töluvert.Stjórn Arion banka leggur til arðgreiðslu sem nemur 11,5 krónum á hlut sem jafngildir 15,3 milljörðum króna. Hagnaður sem tilheyrir hluthöfum bankans var 30,6 milljarðir króna á árinu 2025, samanborið við 26,1 milljarð króna 2024.Landsbankinn hagnaðist um 38 milljarða eftir skatta árið 2025 en það er hálfs milljarðs aukning frá árinu áður. Arðsemi eiginfjár var 11,6% samanborið við 12,1% árið áður.Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að hagnaður bankanna endurspegli mjög sterka stöðu efnahagsmál