Sænsk flugsveit sinnir loftrýmiseftirliti Atlantshafsbandalagsins frá Keflavíkurflugvelli fram í miðjan mars.Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins er liður í sameiginlegum vörnum bandalagsríkja og skiptast ríkin á að sinna henni. Svíþjóð sér nú um hana í fyrsta sinn.Svíþjóð gekk í NATO 2024.Verkefnið felur í sér að orrustuþotur og sérþjálfað lið eru til taks til að bregðast við óþekktum eða óvæntum flugferðum eða ógnum í lofthelgi bandalagsins.Flugsveitir NATO hafa reglulega sinnt loftrýmisgæslu hér á landi frá 2008, að beiðni íslenskra stjórnvalda.