Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Berjast við náttúruöflin í Reynisfjöru

Landeigendur í Reynisfjöru berjast við náttúruöflin eftir töluvert landrof í fjörunni. „Við erum að reyna að verja útsýnispallinn sem við settum hérna og skiltin og við erum búin að færa grjót úr fjörunni og setja hérna og sjá hvort að það geri eitthvað,“ segir Ívar Guðnason, bóndi og landeigandi að Reynisfjöru. „En við vitum ekkert hvort að það dugi.“Framkvæmdirnar eru alfarið á kostnað landeigenda, sem sjá um allt viðhald. „Það er búið að grafa rosalega úr þessu og það heldur bara áfram ef ekkert er gert.“Til þess að styrkja undirstöðurnar ferja þeir grjótið sem sjórinn færði til í austanáttinni sem hefur verið ríkjandi undanfarið. Ívar segir að stórgrýtið hafi velst um í briminu eins og smávölur. Drunurnar hafi heyrst alla leið heim að sveitabýlunum í Reynishverfi.Eins og sjá má á þessu
Berjast við náttúruöflin í Reynisfjöru

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta