Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,6 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Er það í samræmi við arðgreiðslustefnu bankans um að greiða 50 prósent af hagnaði fyrra árs í arð til hluthafa. Þetta er meðal þess sem kemur fram í afkomutilkynningu bankans sem var birt í dag.Hagnaður af rekstri bankans árið 2025 nam 25,2 milljörðum króna og var arðsemi eiginfjár 11,2 prósent. Hreinar vaxtatekjur á árinu námu 52,5 milljörðum króna, sem er aukning um 11 prósent frá 2024. HAGNAÐUR AF REKSTRI NAM 5,9 MILLJÖRÐUM KRÓNA Á FJÓRÐA ÁRSFJÓRÐUNGI Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði úr 43,6 prósentum árið 2024 niður í 42,4 prósent árið 2025. Hrein fjármagnsgjöld voru 922 milljónir króna á árinu 2025, borið saman við fjármagnsgjöld að fjárhæð 338 milljónum króna árið 2024.Hagnaður af rek